Við erum búin að fara á svo marga góða tónleika undanfarið að það hálfa væri nóg! Það er hins vegar dálítið hlægilegt að á hverjum tónleikum sem við förum á tökum við nokkra bæklinga með okkur heima um aðra tónleika og tónleikaraðir næstu daga og mánuði. Við erum komin með þvílík kynstur af bæklingum að það er ekki hlægilegt! Það liggur við að það sé full vinna að fylgjast með því öllu því sem við missum af!
Af tónleikum sem við höfum sótt standa standa þrennir uppúr. Við hlustuðum til dæmis nýlega á Isabellu Faust leika sónötur og partítur fyrir einleiksfiðlu eftir Bach af miklu listfengi. Tónleikar með fiðluleikaranum Janine Janson ásamt píanóleikaranum Itmar Golan voru frábærir, píanistinn brilleraði til dæmis algerlega í sónötu Ravels!
Þá fór ég á tónleika með Hélène Grimaud, hún er kröftug kona og hinn mesti virtúós, komst á þvílíkt flug í h-moll píanósónötu Frans Liszt að maður var gersamlega bergnuminn. Auk þess heyrðum við mjög áhrifamikla túlkun á píanótríói Shostakovich í gær, á stofutónleikum á fiðluverkstæði, þar sem boðið var upp á snarl, vín og osta á eftir. Afar notalegt!
No comments:
Post a Comment