Thursday, November 11, 2010
Allegro - heima og heiman!
Allegro Suzukitónlistarskólinn er okkar kær vinnustaður allt frá því við stofnuðum hann með dyggri hjálp foreldra og kennara. Nafnið Allegro þótti hafa alþjóðlega skírskotun, auk þess að merkja hratt og fjörlegt, sem okkur líkaði vel. Við vissum ekki þá hve margir ólíkir aðilar hafa tekið þetta nafn upp á arma sína. Fyrir nokkrum árum fundum við kaffihúsið Allegro í Píran í Slóveníu. Það er líka nótnafyrirtæki á netinu kennt við Allegro. Á námskeiði í Póllandi fundum við súkkulaði sem hét Allegro. Foreldrar keyptu nokkuð af þessu eðalsúkkulaði og buðu að smakka á 10 ára afmæli skólans. Á dögunum áttum við viðkomu í Prag á leið frá Ljubljana eftir velheppnað píanókennaraþing. Okkur fannst við hæfi að láta eftir okkur að fara fínt út að borða svona einu sinni, og hófum leit að fínum veitingahúsum. Viti menn, við fundum besta veitingastað Tékklands eftir nokkra leit. Hvað hét hann? Auðvitað ALLEGRO!
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
No comments:
Post a Comment