Saturday, January 29, 2011

Enn á ný í Berlín...

Eftir að til Berlínar var komið, hófst hið reglubundna líf aftur. Sofa, vakna, lesa, læra, æfa sig, skoða hvað er um að vera í háskólunum og í tónleikasölum Berlínar, fara út að hreyfa sig, borða hollan mat!
Annars fór annar dagurinn í hjólaviðgerðir, þurfti að skipta um framdekkið hjá mér, það var orðið hættulega bólgið á köflum! Fór með hjólið hennar Lilju til viðgerðarmanns í götunni (það finnst allt í götunni sem á þarf að halda!) og lét gera við gírana. Ómögulegt að vera alltaf í sama gír!
Daginn eftir fór svo undirritaður í hjólaferð og fann heljarstóran flóamarkað sem opinn er alla daga, og antik verslun. Fann þar merkilega bók um “húskonserta” í Berlín. Keypti hana á hálfa evru og aðra til eftir Alistair Machleen á sama verði. Víða hægt að gera góð kaup. Á heimleiðinni rakst ég á Íslandsstræti, og hjólaði það á enda, en sannast sagna fannst mér nafnið það fallegasta við götuna! Þarna er heilt hverfi þar sem allar götur eru kenndar við lönd og borgir í Skandinavíu.

Meðal helstu viðburða sem við höfum sótt nýlega voru tónleikar í Fílharmoníunni þar sem Christian Tetchlaff lék einleik í fiðukonserti eftir Sjostakovíts. Frábær fiðluleikur og aukalagið (Sarabande í d-moll eftir Bach) var svo fallega leikið að við stóðum á öndinni! Einnig fórum við á nemendatónleika í Béla Bartok tónlistarskólanum sem er svona venjulegur tónlistarskóli, (vorum ekkert yfir okkur hrifin) og einnig í Julius Stern stofnunina sem er tengd UDK háskólanum og með kennurum þaðan og undirbýr afburðatónlistarnemendur undir háskólnám. Þar var allt annar bragur á, nemendur allt niður í 12 ára gamlir, alveg frábærir flytjendur. Hér er líka til tónlistarmenntaskóli sem gegnir sama hlutverki, þannig að möguleikar til tónlistarnáms eru fjölbreyttir, en líka mjög vel gert við þá sem hafa áhuga og metnað til að ná langt.

Einnig má nefna tónleika þar sem leikið var á hammerflügel, sembal, orgelpósitíf og rafmagnshljómborð. Fluttar voru litlar prelúdíur eftir Bach, ásamt öllum inventionum og sinfonium fyrir hljómborð. Mjög skemmtilegt, stundum var bætt við fylgibassa meðleik, og öll þessi mismunandi hljóðfæri og hljómblær skapaði spennu og fjölbreytni í flutningi. Þessir tónleikar voru í Friedenauer Kammersal, en þar eru ýmis gömul hljómborðshljóðfæri, einskonar vísir að safni virðist vera. Síðan hef ég fylst með einkakennslu og masterklassa hjá prófessor Klaus Hellwig. Einnig meðleikurum í Hanns Eisler, mjög áhugavert. Lilja fór að skoða nemendur hjá Kolja Blacher, en hún hefur líka verið upptekin við að undirbúa fyrir Póllandsferðina en þar erum við einmitt þegar þetta er ritað, meira um það í næsta pistli.

No comments: