Thursday, October 14, 2010

Þá er önnur vika Berlínardvalarinnar langt liðin. Þýskar sagnir, samsettar og ósamsettar, forsetningar, mismunandi föll, ný orð, allt komið í graut í kollinum á okkur! Við hjólum í ca 40 mínútur á hverjum morgni í skólann; “Sprachenatelier” sem er fínn skóli, ekki of margir í bekk (12) líflegur og skemmtilegur kennari og frábærir bekkjarfélagar. Þar að auki bætast við menningarferðir á vegum skólans í hverri viku, í dag fórum við eftir skóla að skoða nútímalistaverk í byggingum Allianz tryggingafélagsins. Þvílíkar víðáttur – langir gangar og margar hæðir – þarna vinna núna um 1600 manns en áður um 4000. Það er kreppa víðar en á Íslandi! En á hverjum einasta gangi eru listaverk, myndir og málverk, skúlptúrar og skreytingar, jafnvel blönduð verk með hljóðum. Hvað skyldi þetta allt hafa kostað? Vonandi hafa listamennirnir alla vega fengið vel borgað fyrir vinnuna sína! Annan laugardag í hverjum mánuði er ávalt ókeypis leiðsögn um bygginguna til að skoða listaverkin. 

Þýskar flæðir út um eyrun á okkur, betra væri að meira flæddi úr munninum! Við erum orðin þreytt og farin að hlakka til helgarinnar, að geta sofið út!

No comments: