Á sunnudaginn var fórum við hjónin út í Múrgarð (Mauerpark) á flóamarkaðinn og keyptum okkur tvö reiðhjól fyrir lítinn pening. Við ætlum að slá tvær flugur í einu höggi, stunda ókeypis líkamsrækt við að koma okkur á milli staða, og spara lestarkostnað! Síðdegis fórum við síðan á tónleika í Fílharmóníunni (á hjólum að sjálfsögðu) til að hlusta á alla Brandenburgarkonsertana í flutningi Akamus (Akademie für alte Musik, Berlin) Það var virkilega gaman, flutningur sveitarinnar léttur og lifandi, sannkölluð barrokk sveifla. Síðan var farið út að snæða pizzu með okkar elskulegu dóttur, en hún bauð okkur á tónleikana. Hún er búin að vera að spila með hljómsveitinni af og til, og stundum í leiðandi hlutverki.
No comments:
Post a Comment