Thursday, October 14, 2010

Glæsilegur píanóleikari

Í síðustu viku fór ég á tónleika í Konsert Haus við Gendarmenmarkt. Þar lék á slaghörpuna Martin Stadtfeld, sem vann fyrstu verðlaun píanóleikara í Bach keppninni í Leipzig árið 2002. Hann hefur þegar tekið upp nokkra geisladiska og er á samning hjá Sony. Leikur Martins var ahð mörgu leiti stórkostlegur, sumu leiti virkar hann eins og arftaki Glenn Gould, hann situr mjög lágt við hljóðfærið, það voru grunsamlega stuttir fætur undir píanóbekknum, en hins vegar ógnarlangir fætur undir píanóleikaranum! Hann hefur ótrúlegt vald yfir áslætti og ritma, en það sem hreif einkum var hve örveikt hann gat spilað, með dúnmjúkum áslætti, hljómburður salarins skilaði þessum undurmjúka hljómi síðan þannig að unun var á hlýða. Efniskráin hófst á enskri svítu, en í kjölfarið fylgdi umritun Rachmaninoffs á Bach og umritanir Liszt á verkum Wagners ásamt frumsömdum verkum Rachmaninoffs. Útsetningarnar á Wagner voru ótrúlega litríkar í höndum píanóleikarans. Efnisskrána geta annars áhugasamir skoðað hér.
og heimsíðu Martins hér: http://www.martinstadtfeld.de/ auk þess sem finna má einhverja myndbúta á youtube.

No comments: